Íformi 17-19 september 2010

Prenta út

Nú er undirbúningur fyrir næsta mót kominn í gang og hefur reyndar verið síðan í vetur, aðstaða í Íþróttahúsi hefur verið löguð svo auðveldara er að vera með tvo blakleiki í gangi í einu. Önnur framkvæmd sem verið hefur í gangi um nokkurt skeið og kemur til með að auðvelda fótboltamönnunum sinn leik er gerð gervigrasvallar, þessi framkvæmd jafnast á við þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið í Suður Afríku (ef miðað er við hausatölu) vegna Heimsmeistarakeppninnar.

Keppt verður í sömu greinum eins og undanfarin ár, það er Badminton, Blak, Bridge, Fótbolti, Frjálsar, og Golfi. Leitast verðu við að láta greinar skarast sem minnst eins, og reynt verður að koma til mót við sem flesta þegar rástímar í Golfi verð ákveðnir. Tíma seðil fyrir mótið í haust er ekki tilbúinn en hann kemur til með að vera svipaður í í fyrra sá seðil er hér neðar á síðunni, en þetta veltur allt á skráningu eins og gefur að skilja.

Við Hornfirðingarnir erum byrjuð að undirbúa okkur fyrir átök inn í haust, úthaldið er það sem skiptir máli og þar ætlum við að vera á heimavelli. Markvissar æfingar fram að móti hvort sem það er á íþróttavellinum við spilaborðið, eða úti að borða með makanum er það sem kemur til með að skilja á milli sigurvegarana og hinna.

Fyrir hönd undirbúningsnefndar

Ásgrímur Ingólfsson