Undirbúningur kominn á fullt

Prenta út

Fyrsti fundur í undirbúningsnefndinni  fór fram í gær og þar var staðfest dagsetningin 18-19 september og að keppa í sömu greinum og í fyrra sem eru; Blak, Frjálsar íþróttir, Hnit, Fótbolti karla og kvenna, Bridge og Glof.   Þá var skipt  verkefni á milli manna og fyrsta verkefnið er að koma æfingum  heimamanna  á fullt.  Old boys eru t.d. á þriðjudögum og fimmtudögum, frjálsar ætla að byrja á miðvikudögum eftir 17 ágúst, badmintonið byrjar á þriðjudögum og fimmtudögum kl.17.00 í íþróttahúsi Heppuskóla og verður byrjað á þriðjudaginn næstkomandi.  Þá er blakið að byrja og eins ætla bridge spilarar að hita upp á sunnudögum í Ekrunni og stefna á sunnudaginn 30 ágúst. Nú þá eru golfarar í fantaformi þessa dagana og þurfa bara halda því áfram.  Sem sagt allt að gerast og spennan eykst.

Skráningarkerfið ætti að vera klár strax í næstu viku, en jafnframt er hægt að skrá sig með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   nú eða fyrir þá sem eru mjög tölvufælnir má jafnframt senda póst á

Umf. Sindri

Hafnarbraut 25

780 Höfn

Co  Íformi

Þá er ekkert annað en að drífa sig að koma sér Íform og taka þátt.