| 22 September 2009
Framkvæmdanefnd Íformi þakkar keppendum og öllum þeim sem að mótinu komu fyrir frábært mót og drengileg keppni. Að þessu sinni voru þátttakenndur sem skráðir voru í þessar sex greinar rúmlega 200 en auðvita voru margir sem kepptu í fleiri en einni grein. Það er verið að bera saman skráningar en í fljótu bragði virðast rúmlega 100 einstaklingar hafa keppt. Það er rúmlega 20% aukning frá fyrra ári, rétt er að benda á að keppendur í frjálsum voru 37 og er það 13 fleiri en skráðir voru á meistaramót Íslands fyrir 30 ára og eldri sem haldið var í Laugardalnum í ágúst. Kvöldskemmtunin tókst mjög vel og var hörku ball langt frá á nótt. Maturinn sem allur var ættaður úr héraði þótti glæsilegur og góður eftir því.
Næsta mót verðu helgina 17-18 september 2010. Við vonumst til að sjá alla þá sem kepptu nú um helgina aftur en einnig marga nýja. Það er frábært að vera Íformi.
Nú stendur yfir ritskoðun á myndum frá mótinu og verða þær vonandi komnar inn á síðuna seinna í vikunni.