| 30 Ágúst 2010
Keppt verður í bæði kvenna og karlaflokki þetta árið, einsog síðast liðin ár. Spilað verður á nýja gervigrasinu og grasinu ef þörf krefur. Spilað verður þvert á völlinn og 6 leikmenn í liði. Spilað verður 2x12 mín. Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en 2 meistaraflokksmenn í sama liði, en undantekning verður þó gerð ef sá þriðji er arfa slakur og hafi vottorð upp á það. Í fyrra setti hinn skelfilegi 69 árgangur mikinn svip á mótið og væri gaman ef fleiri árgangar myndu hella sér svona í geimið, en þeir hafa kannski ekki í lið. Reynt verður að stilla fótboltanum þannig upp að hægt sé að taka þátt í frjálsum líka. Konurnar verða reyndar búnar þegar frjálsíþróttirnar byrja , en karlarnir verða að hugsa fyrir varamönnum ef þeir ætla að fara mikið í frjálsar. Skora ég á alla að mæta nú með lið í fótboltann og takast á með heilbrigðum hætti í leik þar sem gleði og kærleikur ræður ríkjum.

























